Áfram í innihald

Unglinga Saumanámskeið

Unglinga saumanámskeið fyrir 14-17 ára í Saumu !

Kvöldnámskeið 4 kvöld, tvisvar í viku frá kl. 18-21.

Dagssetning:

Þriðjudaga:  7. júní og 14 júní
Fimmtudaga: 9 júní og 16 júní

Saumanámskeiðið er haldið í Saumu að Hátúni 12, 105 Reykjavík, og ætlað fyrir unglinga 14-17 ára.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Helga Rún Pálsdóttir klæðskerameistari og fatahönnuður, leikmynda-og búningahöfundur og hattahönnuður. Helga Rún er með mikla reynslu í saumaskap og sniðagerð og hönnun, og er meðal annars formaður sveinsprófnefndar í klæðskurði.

Námskeiðið er 12 klukkustundir og kostar 25.000. kr. 

Staðfestingargjald 8.000. kr. þarf að greiða í síðasta lagi viku fyrir námskeiðið til að tryggja sér pláss, inn á reikning 0117-26-25052, kt. 570889-1259, restin af námskeiðsgjaldinu er svo greitt áður en námskeiðið byrjar.
Frekari upplýsingar veita Sveinn 892-1170 og Helga 664-1271 eða á netfanginu sveinndal@sauma.is,

Á námskeiðinu saumar hver sér flík að eigin vali, og farið er í gegnum það helsta sem að þarf að hafa í huga þegar flík er saumuð.

Sniðagerð:
Máltaka er kennd, hvernig á að taka upp snið úr sniðablöðum, hvernig taka á upp snið af annarri flík, efnisnotkun, hvernig leggja á snið á efni og klippa það.

Unnið er með efni úr Saumu, og eru einnig ýmis snið á staðnum ásamt sýnishornum af þeim flíkum.

Samsetning:
Verkröðun við að setja saman flík, frágangur og ýmisleg atriði svo sem rennilásaísetning, saumför, faldur og hálsmál.

Saumavélar:
Farið er í það helsta um saumavélar og stillingar og hvenær hvert spor er notað og mismunandi nálar.

Stuttlega verður farið í það hvað klæðir best og hvað skal varast í sniðum, og efnisval.

Það sem að þarf að hafa með sér, eru helstu verkfæri til sauma, saumavél, skæri, títuprjónar, málband og svo framvegis.

En Sauma er með flest allt til sölu á staðnum svo sem efni, sniðapappír, nálar, tvinna, rennilása og tölur og margt fleira.

Í ljósi þessara skrítnu tíma minnum við á að við erum með spritt og einnota hanska á staðnum og sótthreinsum borð og á höld fyrir og eftir hvert kvöld, og höldum okkur við 2 metra regluna góðu.