Áfram í innihald

Skilmálar

Að versla á vefnum

Afhending vöru

Þegar þú verslar í vefverslun Saumu getur þú valið á milli þess að sækja pöntunina á Akureyri næsta virka dag eða fá hana senda heim með Íslandspósti. Viðkomandi fær senda staðfestingu í pósti þegar varan fer á pósthús eða er tilbúin til afhendingar í verslun.

Allar pantanir sem á að sækja á Akureyri og gerðar eru fyrir klukkan 16:00 eru tilbúnar til afhendingar næsta virka dag eftir klukkan 16:00 né annað sé tekið fram. Ef þær eru gerðar eftir 16:00 þá eru þær tilbúnar þar næsta virka dag eftir klukkan 16:00.

Ef pöntunin þín er send með Íslandspósti fer hún í póst 24-48 klst eftir að pöntun hefur verið gerð svo lengi sem að varan sé til og greiðsla fæst staðfest. Ef að varan er ekki til á lager mun starfsmaður láta þig vita með áætlaðan afgreiðslutíma. Þú munt síðan fá staðfestingu á komu vörunnar með sms skilaboðum eða með tilkynningu þar sem fram kemur á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna. 

Ef um sendingar út fyrir landsteinana er að ræða geta tollar og gjöld viðkomandi lands bæst við vöruverðið sem er ekki innifalið í verðunum okkar hér á heimasíðunni.

Skilafrestur

Við skiptum vörum með ánægju ef þú ert með kassakvittun og bjóðum þá upp á að skipta í nýja vöru á móti eða inneignarnótu. Ekki er hægt að fá endurgreitt nema um gallaða vöru sé að ræða. Skilafrestur miðast við 14 daga frá afhendingu. Útsöluvöru er einungis skipt út fyrir aðra útsöluvöru. Ef skila á metravöru vegna galla, verður að koma með ALLT efnið til baka, þó það sé klippt niður, til þess að fá nýtt

Endurgreiðsla er gerð á sama kreditkort og kaupin áttu sér stað upphaflega og athugið að endurgreiðsla getur tekið allt að 5 virka daga til að ganga í gegn. Þetta getur verið mismunandi eftir kortafyrirtækjum og getum við því miður ekki haft áhrif á þetta.

 

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sala á vörum sem senda á út fyrir landsteinana er gerð án VSK og dregst sú upphæð frá uppgefnu vöruverði hér á netversluninni.

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með greiðslukorti  Vinsamlega athugið að einnig er hægt að greiða með millifærslu með því að hafa samband við okkur á sala@sauma.is eða í síma 6632879.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

Sauma ehf áskila sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Persónuvernd

Sauma ehf virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Með því að heimsækja vefinn okkar lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig geturðu haft samband við okkur með tölvupósti á josasigmars@gmail.com 

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. 

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna.

Þegar þú pantar vöru í gegnum netverslun Saumu geymum við upplýsingar um kreditkortanúmerið þitt aðeins þar til varan hefur verið send frá okkur og greiðslurnar eru frágengnar. Korta er með PCI DSS (Payment Card Industry Data Security Standard) löggildingu sem er ætluð að takmarka öll korta fjársvik. Korta notar AVS (Address Verification Services), CVV2 (Card Verification Value, MasterCard SecureCode, Verified by Visa (VbV) og Payment Application Data Security Standard (PA DSS) for distributed software.

Kortaupplýsingar eru geymdar á öruggum stað á meðan á greiðsluferlinu stendur. Fyrir frekari upplýsingar þjónustu Korta bendum við á heimasíðu Korta.

Ábyrgðarskilmálar

Ef vara telst gölluð munum við skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini.  Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.

Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að skila henni í verslun Saumu ásamt kvittun til staðfestingar á kaupunum.